Þátttaka 10. bekkjar í Lundarskóla

Í Lundarskóla fengust nemendur í unglingadeild við verkefni sem tengdust Akureyri. Nemendur kusu svo þær kynningar sem þeir töldu bestar. Þeir tveir hópar sem urðu hlutskarpastir komu svo á þingið og kynntu niðurstöður sínar fyrir þátttakendum.
Annar hópurinn fjallaði í kynningu sinni um Andapollinn og fer hér á eftir samantekt á niðurstöðum þeirra.

Andapollurinn:

  • Andapollurinn hér á Akureyri er ekki í góðu standi eins og er.
  • Vatnið orðið frekar ógeðfellt.
  • Það væri gott ef maður gæti labbað til andanna.
  • Grindverkið er líka ryðgað og mosagróið á mörgum stöðum.
  • Þegar ferðamenn spyrja okkur hvað sé best að skoða hér á Akureyri þá væri gott ef við gætum sagt stolt að Andapollurinn sé flottur og það borgi sig að kíkja á hann.

Hvar er fjörið?

  • Það vantar skemmtun t.d. skemmtigarða eða keiluhöll.
  • Vantar fleiri atvinnutækifæri.
  • Stækka bæinn svo að fyrirtæki sem höfðu til fjöldans komi hingað.
  • Byggja keiluhöll.
  • Koma upp öflugra félagslífi og taka félagsmiðstöðvarnar í Reykjavík okkur til fyrirmyndar.

Er Akureyri of rólegur bær?

Hinn hópurinn úr 10. bekk Lundarskóla hafði kannað hvort Akureyri væri of rólegur bær. Niðurstöður þeirra má sjá á kökuritinu hér fyrir neðan.


Ljósmynd: Þorgeir Baldursson