Ljósmyndir hér fyrir ofan:
    Þorgeir Baldursson

    Spáð í spilin

    Hér sat saman frumlegur hópur með þátttakendur frá unglingsaldri til ellilífeyrisþega, sem var sammála um að Akureyri sé fallegur bær.
    Rætt var um mannlífið í miðbænum, afþreyingu þar einkum fyrir unga fólkið og yfirbragð hans. Fram kom að ónóg dægradvöl væri fyrir unga fólkið á aldrinum 16 – 20, sérstaklega á kvöldin og um helgar. Einnig skorti nokkuð á dægradvöl þar sem allir aldurshópar gætu verið saman. Áhugavert gæti verið að stofna „menningar-kaffihús“ fyrir aldurshópinn 16 – 20 ára, þar sem m.a. væri boðið uppá reglulega danskennslu og dans s.s. freestyle, funk og tangó, aðstöðu til lista auk annarrar afþreyingar. Gaman vær að fá „hjólabrettagarð“ og bjóða uppá t.d. fimleika. Keilusalur fyrir alla fjölskylduna yrði örugglega vinsæll. Yfirbragð miðbæjarins er grátt og hann ekki þrifinn nægilega oft. Lagt var til að stofnað yrði „fegurðarráð“ með íbúum og / eða hagsmunaaðilum í miðbænum.
    Vannýtt tækifæri eru í Eyjafirðinum sjálfum. Hægt væri að nýta t.d. skólaskipið Áka til að kynna unga fólkinu, almenningi og ferðamönnum betur sjóinn, veiðar og siglingar. Gefa færi á að veiða nokkra fiska. Fjölga má tækifærum til afþreyingar fyrir ferðamenn í tengslum við siglingar og bjóða uppá t.d. sjóstangaveiði, skoðun á „jarðhitastrýtum“ á jarðhitasvæðinu undir Eyjafirðinum með neðansjávarmyndavél og köfun.
    Mikilvægt sé að auka fjölbreytni í atvinnustarfsemi m.a. á sviði verslunar, tækni og ferðaþjónustu allan ársins hring. Skoða þarf möguleika á fleiri hálaunastörfum. Þjónusta sjúkrahússins var nefnd í því sambandi, en þar má bjóða uppá aðgerðir og aðra þjónustu fyrir útlendinga og tengda þjónustu í kringum þá.