



Ljósmyndir:
Þorgeir Baldursson
|
Umhverfi
Vinnan í hópnum hófst strax eftir hádegi með um 20 þátttakendum en fljótlega fjölgaði. og tóku alls um 40 – 50 manns í umræðunni. Almenn samstaða virtist vera um grænni miðbæ, bættar göngutengingar og aukið skjól í miðbænum. Töluverð umræða varð um framtíð íþróttavallar og háhýsabyggð á Sjallareit. Þá kom fram almennur áhugi á að bæta umhverfi Andapolls og bætt aðgengi gangandi vegfaranda almennt og góðar göngutengingar frá Glerártorgi um miðbæinn og allt inn í Innbæ. Þátttakendur voru almennt á þeirri skoðun að ekki sé beinlínis þörf fyrir að íþróttavöllur sé staðsettur þar sem Akureyrarvöllur er nú, en vilji er fyrir því að svæðið verði áfram grænt svæði.
Það kom sterkt fram að skapa mætti notalegra umhverfi í gamla miðbænum með því að rífa nokkur ónýt eða léleg hús við Hafnarstræti og mynda skjólgóð port sem tengja svæðið við Skipagötu. Þannig næðist heillegra og meira aðlaðandi svæði.
Greina mátti töluverða andstöðu við háhýsi bæði við Baldurshaga og á Sjallareit. Hinsvegar kom fram að æskilegt væri að við uppbyggingu á Sjallareitnum og í næsta nágrenni yrði hugað að því að byggðin myndaði skjól fyrir núverandi miðbæjarsvæði.
Málefni
- Víða er vindstrekkingur í miðbænum.
- Steinsteypa er ríkjandi á kostnað gróðurs.
- Auka þarf mannlíf og laða alla fjölskylduna í miðbæinn.
- Fjölga þarf íbúum á miðbæjarsvæðinu.
- Þörf er fyrir góðar tengingar við miðbæinn með göngu og hjólastígum.
- Skátagilið skortir hlutverk.
- Of lítið er af listaverkum og staðsetning þeirra listaverka sem þegar eru, er umdeild.
- Andapollurinn er vanhirtur.
Aðgerðir
- Við endurhönnun á svæðinu miði niðurrif gamalla húsa og bygging nýrra, að því að skapa skjól.
- Lögð verði áhersla á að auka gróður og skapa yfirbragð sem minnir á Lystigarðinn.
- Auka fjölbreytni í starfsemi og afþreyingu svo íbúar/ fjölskyldur eigi oftar erindi í miðbæ, t.d. matvöruverslun, markaðir, menningarlíf og leikir.
- Aukið verði framboð á íbúðarhúsnæði á miðbæjarsvæðinu.
- Tengja Glerártorg, miðbæ, Fjöruna og Innbæinn.
- Skátagil verði leiksvæði, sumar sem vetur.
- Staðsetning listaverka verði endurskoðuð, t.d. í samvinnu við Listasafnið.
- Bæta umhverfi Andapollsins og gera hann aðgengilegri.
|