Ljósmyndir:
    Þorgeir Baldursson

    Samfélag

    Vinnan í hópnum hófst með tiltölulega fáum þátttakendum en fljótlega fjölgaði. Kjarninn í hópnum voru 8 manns, en um 15 manns tóku þátt í umræðunni. Þátttakendum voru málefni aldraðra hugleikin. Þeir töldu að eitt stærsta vandamál aldraðra væri skortur á þjónustu, frekar en endilega skortur á aðstöðu. Mest var rætt um þörf fyrir hjúkrunarrými og 24 stunda þjónustu fyrir þá sem á því þurfa að halda. Fram kom að framboð þjónustu miðist of mikið við þann hluta þeirra sem eru rólfærir og geta sótt þjónustu sjálfir og að tími starfsfólks á öldrunarstofnunum væri oft of lítill fyrir mannlegu hliðina. Það kom sterkt fram að samfélagsgerðin virðist einangra kynslóðir frá hvor annarri og það var mat manna að það mætti t.d. leysa með blandaðri íbúðarbyggð og ýmsum verkefnum sem snerust um aukin samskipti kynslóða. Nokkuð var rætt um önnur mál. Þar fór mest fyrir skólamálum og var lögð áhersla á mikilvægi góðs samstarfs heimila og skóla. Það var mat þátttakenda að forgangsröðun verkefna væri ekki rétt og að íþróttir og framkvæmdir hefðu notið forgangs á kostnað mannlegra þátta. Ef slíkt ójafnvægi yrði látið ríkja of lengi, kæmi það niður á samfélaginu til lengri tíma.

    Málefni:

    • Aldraðir eru einangraðir frá öðrum kynslóðum.
    • Ekki hefur verið lögð næg áhersla á samfélagsmál í umræðu og ákvarðarnatöku, sérstaklega í málefnum aldraðra.·
    • Þjónusta við aldraða er ónóg. Skortur er á hjúkrunarrýmum og sólarhringsaðstoð.
    • Vaxandi skerðing hefur orðið á heilbrigðisþjónustu.
    • Samstarf heimila og skóla er mikilvægt og þörf er á meiri tengingu við tómstundir og listnám.

    Aðgerðir:

    • Íbúðarbyggð verði blönduð meira og samstarf milli skóla og eldri borgara aukið.
    • Byggja upp félagsmiðstöð fyrir aldraða. ·
    • Efla sólarhringsþjónustu við aldraða. Bygging hjúkrunarheimilis er hafin við Fjórðungssjúkrahúsið til að mæta þörf fyrir hjúkrunarrými.·
    • Setja heilbrigðisþjónustu í forgang. ·
    • Efla samstarf heimila og skóla með virkni beggja aðila. ·
    • Frumkvæði er mikilvægt í að bæta lífsgæði eldri borgarar, en ekki nóg. Skipuleggja þarf eflingu þessa málaflokks. ·
    • Auka almennt áherslu á mannlega þáttinn í stefnumótun og ákvarðanatöku.