Ljósmyndir:
    Þorgeir Baldursson

     

    Skóla- og menningarstarfsemi

    Í hópnum störfuðu um 30 manns og fleiri þegar á leið. Umræður voru líflegar og snerust talsvert um það með hvaða hætti mætti auka líf í miðbænum með samþættingu mennta- og menningarstarfsemi. Þátttakendum var umhugað um að efla söfnin sem nú þegar eru starfandi í bænum og töldu brýnt að koma Náttúrugripasafninu sem fyrst í hentugt húsnæði. Fram kom metnaður varðandi frekara framboð listnáms á háskólastigi á Akureyri og kallað var eftir bættri aðstöðu fyrir tónlistarskóla. Þátttakendur lýstu ánægju með starfsemi Punktsins og töldu mikilvægt að hún haldi áfram og eflist enn frekar.Hópnum var ekki nægilega ljóst hvaða áform eru uppi varðandi starfsemi fyrirhugaðs Menningarhúss, en sáu þar ýmis sóknarfæri sem þeir lögðu áherslu á að yrðu vel nýtt.

    Málefni:

    • Skortur er á upplýsingum um starfsemi í fyrirhuguðu Menningarhúsi og komu fram áhyggjur um að enginn hafi heimilisfestu í því. Miðbæjar tengist Menningarhúsi.
    • Kallað eftir nýtingu á auðu húsnæði í miðbæ.
    • Söfn á Akureyri verði efld, m.a. til að styrkja ferðaþjónustu.
    • Kallað eftir öðrum tónlistarskóla og aðstöðu fyrir útitónleika.
    • Aðalleikvangurinn er illa hirtur og þarfnast uppbyggingar. Kallað eftir því að íþróttastarf verði tengt meira skólanum.
    • Mikill skuggi er í miðbænum og skjól skortir. Miðbær einkennist um of af grárri steinsteypu.
    • Styrkja þarf handverkshúsið Punktinn.·
    • Áhugi er fyrir því að byggja upp leiksvæði fyrir börn í miðbæ. Sérstaklega vantar aðstöðu fyrir hjólabrettaiðkun á Akureyri. ·
    • Skortur er á fjölbreyttu og nútímalegu iðnnámi. Talsvert kallað eftir listakóla í miðbæinn og stúdentaíbúðum.

    Aðgerðir:

    • Menningarhúsið hýsi menningarstarfsemi í bænum og að þar hafi sinfóníuhljómsveit og listafélög aðsetur.
    • Skrá autt húsnæði í bænum og unnið verði í sameiningu að nýtingu þess, t.d. fyrir háskólann.
    • Byggja upp safnasvæði í Innbæ og efla starfsemi náttúrugripasafns. Gönguleið tengi miðbæ við safnasvæði.
    • Tónlistarskóli rísi í miðbænum í góðum tengslum við Menningarhúsið. Útisvið verði byggt í miðbænum.
    • Ákveða staðsetningu aðalleikvangs. Gera börnum í 1.-4. bekk kleift að stunda íþróttir án gjalda og tengja það meira skólum.
    • Meiri gróðri komið fyrir í miðbænum og hannaðir skjólveggir.
    • Nýta gamla Barnaskólann undir Punktinn og auka kynningu.
    • Byggja upp leiksvæði fyrir börn í Skátagili með hjólabrettaaðstöðu. Keiluhöll verði byggð í miðbænum.
    • Atvinnulífið komi í auknum mæli að eflingu iðnnáms í VMA og leggja áherslu á samstarf við erlenda skóla til að auka fjölbreytni. Háskólinn, listaskóli og stúdentaíbúðir myndi eina heild.