



Ljósmyndir:
Þorgeir Baldursson
|
Atvinnulíf og þjónusta
Alls komu hátt í 100 manns að umfjölluninni í hópnum og lögðu þeir til vel á fimmta hundrað skrifaðra ábendinga. Vegna stærðarinnar og fjölda gulra miða gafst ekki mikið tækifæri til umræðna um einstaka afmarkaða þætti en umfjöllunin var samt sem áður mjög frjó. Ljóst er að þátttakendur sáu mörg tækifæri í umhverfi sínu til eflingar atvinnulífs. Rætt var um samgöngubætur, stefnumörkun, fjölbreytni í atvinnutækifærum og störf í hátækni og fyrir langskólagengna einstaklinga. Ennfremur var rætt um tengsl háskólans og atvinnulífsins. Ýmislegt fleira bar á góma eins og fram kemur hér fyrir neðan. Málefni:
- Fjölbreytni í atvinnulífi er ekki nægileg. Vantar t.d. atvinnutækifæri fyrir langskólagengna og eins skortir stóran vinnustað með fjölbreytt störf.
- Góður grunnur er til staðar í ferðaþjónustunni en með markvissum aðgerðum eru mörg tækifæri til staðar sem geta styrkt þessa atvinnugrein enn frekar.
- Stefna skal að fjölgun íbúa á Akureyri til að standa undir aukinni þjónustu í bænum.
- Nýsköpun og frumkvöðlar hafa ekki búið að nægilega hagstæðu umhverfi. Bærinn getur stuðlað að úrbótum á þessu sviði.
- Samgöngur og flutningskostnaður að og frá Akureyri hamlar atvinnuþróun. Stækka þarf atvinnusvæðið.
- Stefnumörkun varðandi atvinnuuppbyggingu er ekki nógu skýr. Ekki heldur markaðssetning möguleikanna á svæðinu.
- Verslun og þjónusta í miðbænum hefur verið á undanhaldi.
- Viðhorf Akureyringa er ekki nægilega jákvætt og frumkvæði einstaklinga því ekki mikið.
Aðgerðir:
- Tækifæri felst í að efla háskólann með tækninámi og tengja við atvinnulífið. Leitað verði eftir heppilegum stóriðjumöguleikum sem bjóða uppá fjölbreytt störf.
- Nýta margvísleg tækifæri í að bjóða upp á afþreyingu fyrir ferðamenn og íbúa í miðbænum, nýta fjörðinn og fjallið.
- Skapa atvinnu og búsetuforsendur fyrir 10 - 15 þúsund íbúa í viðbót fram til 2020.
- Laða þarf að bæði opinbert- og einkafjármagn og bæta markvisst skilyrði til nýsköpunar.
- Lækka má flutningskostnað með niðurfellingu þungaskatts, styttingu akvegarins til Reykjavíkur og gangnatengingum út Eyjafjörð og til Húsavíkur.
- Stefnumörkun þarf að vera leiðarljós atvinnuuppbyggingar og taka tillit til sérstöðu svæðisins.
- Styrkja má grundvöll verslunar og þjónustu í miðbænum með því að skapa forsendur fyrir hentugt húsnæði og tryggja þægilegt aðgengi að því.
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samvinna er forsenda árangurs.
|