



Ljósmyndir:
Þorgeir Baldursson
|
Miðbærinn
Í þessum vinnuhópi sat meirihluta þátttakenda fyrir hádegi, á annað hundrað manns. Meginþungi umræðunnar var á málefnum sem varða yfirbragð miðbæjarins, mannlíf, verslun og þjónustu. Mikið var kvartað undan hnignun miðbæjarins og tjáðu þátttakendur ýmsar óskir og hugmyndir um úrbætur. Nokkrir þátttakendanna búa á miðbæjarsvæðinu og aðspurðir um mat sitt á miðbænum sem búsetukosti, töldu þeir gott að búa í miðbænum, nema helst í kjarna miðbæjarins, þar sem sé talsvert ónæði, sérstaklega um helgar. Mjög almennur áhugi var á að sjá miðbæinn eflast og breytast þannig að hann geti orðið iðandi af lífi og stolt Akureyringa.
Málefni:
- Vantar líflegri og fjölbreyttari starfsemi.
- Umhverfi í miðbænum er kuldalegt og hann litlaus og gróðursnauður. Skuggi og vindstrengur.
- Ekki er nægilega gott samræmi í skipulagi og yfirbragði og sum hús eru í niðurníðslu.
- Aðgengi; bæta þarf tengingar við önnur svæði innan bæjarins.
- Íbúafjöldi; of fáir sem búa í miðbænum.
- Staðsetning og fyrirkomulag bílastæða fælir frá miðbænum.
- Skiptar skoðanir um hæð bygginga; ýmsir telja þær færa Akureyri inn í nútímann en sú skoðun er almennari að mjög háar byggingar raski bæjarmyndinni.
- Skiptar skoðanir eru um framtíð Akureyrarvallar; sömu not áfram eða grænt svæði með almennri notkun.
Skátagil nýtist ekki eins og það er nú.
- Of lítið mannlíf er í miðbænum.
Aðgerðir:
- Örva verslun og aðra starfsemi, t.d. með matvöruverslun, hagstæðri leigu og veitingastarfsemi og menningu.
- Gefa gróðri meira vægi, sem ásamt byggingum myndi skjól. Mætti byggja yfir miðbæinn að hluta.
- Léleg hús verði rifin, lýsing bætt og hugað að skipulagsskilmálum til að skapa heildstæða mynd.
- Bæta tengingar við miðbæ, sérstaklega fyrir gangandi og hjólandi, s.s. að Glerártorgi, gegnum Listagilið, með ströndinni og að Menningarhúsi og höfn um Strandgötu.
- Ný, fjölbreytt íbúðarbyggð verði staðsett í miðbænum og nágrenni hans eins og kostur er.
- Bílastæðum í miðbænum verði fjölgað og hugað að breytingum á staðsetningum og greiðslufyrirkomulagi.
- Gætt verði varkárni varðandi hæð bygginga og lögð áhersla á að nýbyggingar verði í góðu samræmi við bæjarmyndina.
- Verði Akureyrarvöllur lagður af, verði þar grænt svæði, góðar göngutengingar og t.d. fjölskyldugarður og hlaupabrautir.
- Skipuleggja Skátagil sem grænt svæði til útivistar og afþreyingar.
- Miðbærinn iði af lífi, t.d. með starfsemi, uppákomum og listalífi.
|