|
|
„Höfuðstaður”
Í hópnum störfuðu um 10 þátttakendur auk þeirra sem litu við og tóku þátt í umræðum í stutta stund. Hópurinn velti fyrir sér spurningunni um hvað það sé sem helst geri Akureyri að höfuðstað Norðurlands og hvernig megi styrkja þá stöðu bæjarins. Þátttakendur nefndu að Akureyri er sterkur valkostur við höfuðborgarsvæðið. Þar vegur þyngst öflug menningarstarfsemi, mennta- og heilbrigðisstofnanir, þjónusta og verslun og iðnaður og úrvinnsla, ásamt því að bærinn er gamall og gróinn og miðstöð vetraríþrótta. Fram kom að sú uppbygging sem nú á sér stað á Austurlandi skapar sóknarfæri fyrir Akureyri. Þátttakendur lögðu áherslu á tengingu bæjarins við nágrannabyggðir og mikilvægi góðra samskipta þar sem sveitarfélögin vinni saman að sameiginlegum hagsmunamálum, m.a. í ferðaþjónustu. Hrísey býður upp á nýjan búsetuvalkost og hlaut sú hugmynd að þar gæti orðið vistvænt samfélag, góðan hljómgrunn meðal þátttakenda. Hópurinn lagði áherslu á mikilvægi samgangna við eflingu Akureyrar og Norðurlands alls, s.s. Héðinsfjarðargöng, Vaðlaheiðargöng og beint flug til Evrópu. Aðspurðir töldu þátttakendur beint flug til Evrópu, menntastofnanir og heilbrigðisþjónustu vera þá þrjá þætti sem myndu skipta sköpum fyrir Akureyri sem höfuðstað Norðurlands til framtíðar.



|