„Heill miðbær”

    Þessi hópur vildi heilan og hraustan miðbæ. Meðal hugmynda sem komu fram var að tengja miðbæinn betur við höfnina annars vegar og við brekkuna hins vegar. Þétting byggðar var talin heppileg til þess að stuðla að auknu lífi í miðbænum. Rætt var um nýja íbúðarbyggð þar sem nú er bílastæði milli Skipagötu og Glerárgötu og þar væru verslanir og þjónusta á neðstu hæð en íbúðir ofar. Þörf er fyrir betri tengingar milli bæjarhluta og veita má meira sólskini inn í bæinn með því að ryðja burt völdum húsum. Bæta má aðgengi að höfninni með því að hægja á umferð um Glerárgötu. Ennfremur var nefnt að vönduð lýsing væri mikilvæg til að gera bæinn aðlaðandi og að markaðstorg myndu geta lífgað upp á hann.