|
|
„Græni hópurinn”
Hópurinn kallaði sig Græna hópinn „þó hann fjallaði nær eingöngu um byggingar“ eins og einn þátttakandi sagði. Þar kom fram að nauðsynlegt væri að fá fleira fólk og meiri þjónustu í miðbæinn en nú er. Auk þess þyrfti að mynda þar meira skjól og lífga bæinn meira við t.d. með trjágróðri. Kortlögð voru nokkur svæði þar sem þátttakendur töldu vera hægt að þétta byggð í kringum miðbæinn. Áhersla ætti að vera á blandaða byggð, án háhýsa. Háhýsi skilgreindi hópurinn sem hús sem stæðu upp úr núverandi umhverfi á áberandi hátt. Hugsanlegt væri að hafa hærri byggingar í útjaðrinum t.d. við Hvannavelli. Rætt var um íþróttavöllinn og kom fram áhugi á að nýta amk hluta þess svæðis sem hann stendur á til uppbyggingar „fjölskyldugarðs“ en hluta væri hægt að nýta undir einhvers konar byggð t.d. lágreista íbúðarbyggð. Greinilegur áhugi var á að mynda „Promenade“ meðfram ströndinni til austurs frá Glerárgötu að Eimskipafélagslóð, þar sem gestir og gangandi gætu notið útsýnis til suðurs og gengið meðfram sjónum. Meðfram Strandgötunni og á svæði norðan við hana væri reynt að þétta byggð, þó þannig að hús næst götunni væru lágreist og tryggt að þau féllu vel að götumyndinni sem nú blasir við. Byggð gæti síðan hækkaði til norðurs. Kjörið væri að reisa íbúðarbyggð á núverandi lóð Eimskipafélagsins.


Ljósmynd: Þorgeir Baldursson

|