|
|
„Grænar leiðir II”
Hér var um að ræða óbeint framhald af fyrri hópi með þessu nafni og reynt að kafa dýpra varðandi græn svæði í og við miðbæ. Þátttakendur voru að hluta þeir sömu og í fyrri hópnum. Hópurinn lagði áherslu á tengsl milli svæða.
Þegar skoðaðar voru göngu og hjólaleiðir í stærra samhengi komu eftirfarandi atriði fram:
- Hafa gönguleiðir (og bílveg) að Kjarnaskógi
- Mynda göngu- og skíðaleið um Glerárdal
- Tengja með gönguleiðum miðbær og glerárþorp.
- Gera fallega gönguleið meðfram sjónum.
- Gera opin svæði nýtilegri. Setja upp boltamörk og grill. Góð græn svæði í íbúðarhverfum.
- Gönguleið milli lystigarðs og miðbæjar bætt. Lystigarður niður brekkuna og tengja hann sjónrænt við miðbæ
- Svell á Ráðhústorgi að vetri - lýsing
- Tengja skátagil í Miðbæ
- Gera gönguleiðakort




|