„Fólkið aftur í miðbæ”

    Þrátt fyrir að fjölmennt hafi verið við borðið (yfir 30 manns), þá var það þröngur hópur sem náði að einoka umræðuna. Mátti greina skýrt kynslóðabil í umræðunni, þar sem yngri kynslóð og barnafólk kölluðu á manneskjulegra umhverfi með göngu- og hjólastígatengingum, tengingu útivistarsvæða og aðstöðu fyrir börnin, en fulltrúar miðaldra karla í hópnum vildu öflug bílastæðahús með innanhússtengingar við þjónustu í miðbænum og stóra matvöruverslun. Hluti hópsins kaus 6-8 hæða blandaða byggð á uppbyggingarreitum í miðbæ, en aðrir blésu á slíkann tepruskap og kölluðu á 16-20 hæða hús eins víða og kostur væri. Slíkar yfirlýsingar ollu nokkurri reiði sumra, sem ásökuðu viðkomandi um annarlegar kenndir og minnimáttarkennd gagnvart stórborginni Reykjavík, akureyringum væri nær að virða sérkenni bæjarins og það byggðamynstur sem fyrir er. Eins og í fyrri hópnum var mælt með að Strandgatan yrði styrkt, að einhvers konar bryggjuhverfi yrði skoðað á eyrinni, en einnig komu fram hugmyndir um það að tryggt yrði að fyrirhugað Menningarhús tengdist vel götulífinu, bæði skipulagslega og með fjölbreyttri menningartengdri starfsemi (jafnvel líkamsrækt) frá morgni til kvölds.