„Bær í mótun”

    Lífleg umræða var í þessum hópi. Íbúar fjölluðu mest um miðbæinn – stækka hann til austurs að þjóðvegi 1, verslanir á jarðhæð, niðurgrafin bílastæði og íbúðir ofaná – hámark 6 hæðir. Þar væri ákjósanlegt að búa til torg og gönguleiðir frá núverandi göngugötu með því að fjarlægja elstu húsin og opna bakgarðana. Þar væri unnt að skapa skjól og mannlegan kvarða. Lítið útisvið mætti gera neðst í Skátagili og gera mætti gilið greiðfærara fyrir gangandi umferð. Of margar götur væru í miðbænum. Á Sjallalóðina mætti koma 6-8 hæða hús með þjónustu á neðstu hæð. Talið var nauðsynlegt að hafa nýlenduvöruverslun í miðbænum sem kjarnafyrirtæki sem gæti dregið til sín fólk og stutt við sérvöruverslanir. Með fleira fólki fengist meira líf í miðbæinn, grundvöllur lagður að bættri verslun og fjölbreyttara menningarlífi. Núverandi göngugötu yrði að bæta og skýla fyrir vindi. Ráðhústorgið og umhverfi þess þyrfti að gera mannlegra og fá á það „grænan lit”. Íbúasvæði mætti gera með bryggjuhverfi á Oddeyrinni og strandlóðum norður með ströndinni. Skýjakljúfar voru taldir svo óraunhæfir að enginn vildi ræða um þá. Ekki var talið að núverandi íþróttavöllur yrði til frambúðar en halda ætti honum sem opið svæði. Ekki var áhugi á að byggja á honum, heldur að svæðið tengdist hól við Baldurshaga. Háhýsi ætti ekki að setja á Baldurshaga en til greina kæmi að reisa slík hús á gömlu iðnaðarhúsalóð KEA ofan við stóru verslunarmiðstöðina.