„Perla Norðursins”

    Í hópnum sátu 15-20 manns og var viðfangsefnið ferðaþjónusta á Akureyri. Vinnan hófst á því að greina hverjir væri þeir markhópar sem hafa þyrfti í huga í umræðu um ferðaþjónustu á Akureyri. Út frá því var farið í að kortleggja áhugaverða staði fyrir ferðamenn, innlenda sem erlenda, á Akureyri. Settir voru inn ýmsir staðir sem voru taldir merkilegir út frá menningarlegu sjónamiði eða náttúru. Umræður voru líflegar. Talið var mikilvægt að bæta gönguleiðir milli þessara staða og voru þær kortlagðar. Gönguleiðirnar skildu vera merktar auk þess sem merkingar á áhugaverðum stöðum voru ofarlega í huga hjá þátttakendum. Umræðan þróaðist svo út í að ræða mikilvægi markaðssetningar gersema Akureyrar. Hópurinn var sammála um að ímynd Akureyrar sem vetrarbær væri mikilvæg og ætti að efla markaðssetningu Akureyrar sem perlu norðursins og þá vetrarafþreyingu sem þar býðst, s.s. skíðaiðkun í Hlíðarfjalli og gönguskíðaleiðir.