|
|
„Söguvörður”
Í hópnum störfðu um 20 manns en fjölgaði nokkuð er á leið. Umræður í hópnum snerust einkum um tengingar milli sögulegra bæjarhluta með stígakerfi og söguskiltum. Einnig var rætt um samtengingu sögulegra grænsvæða, s.s. Lystigarðinn og opin græn svæði sem hafa jafnframt sögulegt gildi.. Hugmyndir komu fram um einhvers konar söguvörður eða skilti sem beindu athygli fólks að þessum svæðum og með uppsetningu þeirra mætti skapa heildstætt stígakerfi þar sem gangandi vegfarendur gætu fetað sig um sögu Akureyrar. Upphafspunktur slíkrar ferðar væri frá öflugri upplýsingamiðstöð sem staðsett væri í miðbænum. Þátttakendur voru sammála um að í sögu Akureyrar felist auðlegð sem ástæða sé til að gera sem aðgengilegasta fyrir heimamenn og gesti.



|