|
|
„Sýn”
Þátttakendur höfðu frekar lítinn áhuga á að fjalla um heildarmyndina og ytri aðkomur í bæinn. Meiri áhuga var á að ræða innanbæjartengingar s.s. jarðgöng ofan við kirkjuna niður á fjöruna vegna halla á landi. Ennfremur tengingar við framtíðar “Naustahverfi” (íbúarnir sem ræddu þessi málefni áttu heima við þær götur). Enginn áhugi var fyrir byggingu skýjakljúfa því þeir féllu ekki inní bæjarmyndina, en gátu hugsað sér bryggjuhverfi með tiltölulega lágri byggð. Skipafélögin ættu að fara burtu af eyrinni vegna áætlaðar niðurfellingar á strandferðum og aukna þungaumferð inní bæinn. Miðbærinn ætti að stækka að hafnarsvæðinu og tengjast fyrirhuguðu Menningarhúsi. Íþróttavöllur lagður niður en í hans stað kæmi dýra- og fjölskyldugarður.


|