„Smábær með stórt hjarta”

    Þátttakendur í þessum hópi töldu að öflugur miðbær væri mikilvægur fyrir sterkt samfélag á Akureyri. Miðbærinn þyrfti þá að tengjast vel öllum bæjarhlutum. Í miðbænum ætti að vera fjölbreytt starfsemi í vönduðu og aðlaðandi umhverfi sem væri í góðum tengslum við höfnina og hefði yfirbragð smábæjar. Skilgreindir voru mikilvægir stígar sem gætu tengt helstu gersemar bæjarins og hugmyndir um að láta lystigarðinn skjóta rótum víðar um bæinn fengu góðan hljómgrunn. Rætt var um að ferðafólk, t.d. þeir sem koma til Akureyrar á skíði, myndi hafa áhuga á að dvelja í miðbænum. Þátttakendu vildu meira líf í höfnina og möguleiki á byggingu bryggjuhverfis á lóð Eimskipafélagsins þótti áhugaverður. Slíkt hverfi myndi styrkja miðbæinn frekar.