„Rifið og byggt”

    Brugðið var á það ráð að boða til gönguferðar um miðbæjarsvæðið í byrjun hópastarfsins, til að heimamenn gætu frætt gesti um helstu staðhætti og aðkallandi verkefni. U.þ.b 10 heimamenn fylgdu okkur í klukkutíma göngu þar sem við urðum margs vísari, og var umræðum síðan haldið áfram yfir skipulagsuppdráttum af svæðinu. Fleiri bættust í hópinn sem taldi á tímabili á bilinu 30-40 manns, en rúmur þriðjungur þeirra var virkur í umræðunni.
    Það sem var einna mikilvægast í augum hópsins voru almenningssvæðin, yfirbragð þeirra og tengingar á milli. Var lögð sérstök áhersla á Sundlaugarsvæðið og Andapollinn og skort á skýrri göngutengingu milli þessa svæðis og miðbæjar. Skátagilið var nefnt sem tilvalin leið sem mætti vinna betur. Við göngugötuna taldi hópurinn að mætti rífa nokkur hús austan megin til að mynda skjólsæl og sólrík torg eða port tengd göngugötunni. Skortur á skjóli fyrir norðanátt í göngugötunni og skuggi frá byggingum vestanmegin götu voru nefnd sem helstu vandamál sem þyrfti að finna lausn á. Samstaða var um að færa íþróttavöllin úr miðbænum, en halda svæðinu áfram grænu. Var talað um fjölskyldugarð á þessu svæði og nærliggjandi landi Baldurshaga með göngustígatengingu milli Glerártorgs og miðbæjarsvæðis. Frekari uppbygging þjónustu við Strandgötu var talin álitlegur kostur, sérstaklega m.t.t. komandi Menningarhúss og mögulegs bryggjuhverfis á eyrinni. Áform um háhýsabyggð á Sjallareit og við Baldurshaga voru rædd, en hópurinn var sammála um að hámarkshæð bygginga á þessu svæði ætti að vera 6-8 hæðir, og bent var á nýlegar byggingar við Ráðhústorg sem góða fyrirmynd.