|
|
„Norðan 9”
Lífleg umræða u.þ.b. fimmtán manns, kvenna og karla á öllum aldri skapaðist í kringum skipulagsborðið sem fjallaði um atvinnuþróun á Akureyri. Ekki var horft eingöngu til miðbæjarins heldur Akureyrar í heild og hugsað meira til þess hvernig bættur efnahagur íbúa mun styrkja miðbæinn. Almennt ríkti bjartsýni á horfur í atvinnumálum og endurspeglaðist það í mjög frjórri umræðu um ný og vannýtt tækifæri. Horft var til stóriðju og möguleika til fjölbreyttra starfa tengdum henni en áhersla lögð á að vanda vel staðsetningu stóriðjuvers. Talað var um tækifæri tengd „Norðurleiðinni” í siglingum fraktskipa, innflutning sjúklinga til sérfræðimeðhöndlunar á FSA og sérstaklega um að styrkja bæði matvælavinnslu og ferðaþjónustu í bænum. Að lengja tímabil góðrar nýtingar í ferðaþjónustu var öllum ofarlega í huga sem og að lengja viðdvöl hvers ferðamanns í bænum með auknu framboði á afþreyingu og þjónustu. Akureyringar vilja ekki sjá farþega skemmtiferðaskipanna stíga beint uppí bíl og aka á Mývatn án þess að nýta sér þjónustuna í bænum.



|