|
|
„Manneskjulegri bær”
Fyrri hópnum var ætlað að fjalla um bæinn í heild sinni, helstu lykilsvæði og tengingar. Byrjað var að fá skoðanir fólks á því hvar þungamiðjur bæjarins væri t.d. út frá verslunarsvæðum, atvinnusvæðum og skólasvæðum. Eftir þá kortlagningu var lítillega skoðaðar tengingar og samgöngur á milli þessara svæða en síðan beindist umræðan meira í áttina að miðbænum. Fólk fór almennt að tjá sig um hvað þyrfti að bæta í miðbænum og tínd voru til ýmis atriði, s.s. þörf á betri tengingum milli svæða, göngustíg meðfram Pollinum, þörfin að viðhalda núverandi einkennum miðbæjarins og ekki að byggja háhýsi þó svo að ekki hafi allir verði sammála um það atriði. Áhugavert var að það voru aðallega eldri menn sem vildu fá háhýsi en auðséð var að meirihlutinn var þó á þeirri skoðun að lágreistari byggð ætti betur við í miðbænum. Farið var vítt og breytt í umræðunni um hvað þyrfti að vera í miðbænum og hvernig hann ætti að vera og líflegar umræður sköpuðust.
Hópurinn var stór, sumir sátu við allan tímann en aðrir stöldruðu stutt við. Trúlega hafa um 30-40 manns verið viðriðinn hópinn þegar mest lét. Hópurinn virtist vera mjög breiður hvað varðar aldursskiptingu, og kynjaskiptingu. Til þess að fá sem flesta til að tjá sig þegar hópurinn var hvað stærstur og þátttakendur mjög misjafnlega virkir í umræðunni þá var brugðið á það ráð að útdeila miðum sem fjöldi manna nýtti sér til að skrifa athugasemdir sínar á og lét fylgja með uppdrættinum. Eftir umræðuna var síðan farið yfir þessa miða og reynt að skrá sem flest inná uppdráttinn en þær athugasemdir sem ekki rötuðu þangað voru skráðar með miðunum.


Ljósmynd: Þorgeir Baldursson

|