„Lifandi miðbær”

    Hópnum var ætlað að fjalla um það hvernig mætti efla starfsemi og samfélagsþjónustu í miðbænum. Tekið var sérstaklega fram í kynningu að þar yrði m.a. fjallað um málefni aldraðra. Ekki voru mjög háværar eða snarpar umræður nema þegar farið var í umræðuna hversu há hús ætti að reisa í miðbænum. Allir voru sammála um að ekki ætti að reisa turna í miðbænum en skoðanirnar voru skiptar um hversu langt frá miðbænum þyrfti að fara áður en leyfilegt ætti að vera að reisa háhýsi. Mikilar umræður spunnust um hvernig verslun og þjónusta ætti að vera í miðbænum. Voru allir sammála um að sérverslun ætti að efla þar og flestir að stærri matvöruverslun þyrfti þar einnig. Þó töldu sumir að bílastæðavandamál myndu standa í vegi fyrir stórri matvöruverslun og nefndu staðsetningu og bílastæðavandamál við heilsugæslustöð máli sínu til stuðnings. Umræða um þjónustu við aldraða og frekari aðstaða fyrir börn var einnig lífleg og voru flestir á því að núverandi fótboltavöllur væri svæði sem nýta mætti betur fyrir börn auk þess sem aðstöðu vantaði almennt inni í miðbænum sem laðaði að börn. Skiptar skoðanir voru á því hvernig sú aðstaða ætti að vera. Hópurinn var á því að mikilvægt væri að staðsetja þjónustuíbúðir fyrir eldri borgara í miðbænum eða a.m.k. í göngufjarlægð frá miðbænum en ekki þyrfti sérstaklega að vera með aðra aðstöðu innan miðbæjarins fyrir eldra fólk sem myndi nýta almenna miðbæjarþjónustu frekar ef þeir væru búsettir nálægt henni.
    Hópurinn var ekki sérlega stór, en 10-15 manns sátu við borðið og tjáðu sig um málefnið. Í hópnum var meirihlutinn konur á öllum aldri en þó aðallega eldri konur.