|
|
„Bretti og hjól”
Hópurinn var heldur smár til að byrja með en þegar á leið bættust fleiri við og var aðalumræðuefnið hjólaleiðir og brettasvæði. Hópurinn var ætlaður vinnu með ungu fólki. Vinnan hófst með tveimur þátttakendum og komu fram þau skilaboð um að þau væru nokkuð ánægð með bæinn eins og hann er. Þó töldu þau að erfitt væri að komast á hjóli frá Glerártorgi niður í miðbæ og þörf á að bæta út því. Í hópnum kom skýrt fram að skortur er á brettasvæðum á Akureyri og voru settar inn á kort mögulegar staðsetningar slíkra svæða. Þátttakendur í hópnum voru þá sammála um að hreinsa mætti andapollinn.


|