Efni þessa vefs er líka að finna í greinargerð um opna þingið.
Smelltu hér til að sækja greinargerðina á PDF formi.
Skjalið er 2,9 MB.
|
Opið þing 18. september 2004
Hér er gerð grein fyrir Opnu þingi sem sjálfseignarstofnunin Akureyri í öndvegi hélt á Akureyri 18. september 2004. Tilgangur þingsins var að afla upplýsinga um afstöðu bæjarbúa til skipulags í miðbænum vegna undirbúnings alþjóðlegrar hugmyndasamkeppni um miðbæinn og endurlífgun hans.
Þingið var afar vel sótt og alls munu 1450 manns hafa tekið þátt. Á þessum vef má sjá niðurstöður þingsins og ýmislegt um þingið sjálft.
Af umræðu á þinginu má ráða að bæjarbúum á Akureyri er annt um miðbæinn og þeir sjá marga möguleika til að styrkja hann. Það verður síðan verkefni þátttakenda í hugmyndasamkeppni Akureyrar í öndvegi að finna snjöllustu lausnina á því hvernig gera megi miðbæ Akureyrar að þungamiðju öflugs höfuðstaðar Norðurlands.

Hér er lýst megindráttum þeirra upplýsinga sem fram komu á þinginu. Aðferðirnar sem notaðar voru eru vel til þess fallnar að gefa hugmynd um hug þátttakenda en þær gefa ekki óyggjandi svör um meirihlutavilja eða um hug þeirra sem ekki tóku þátt. Ályktanir sem dregnar eru lúta því almennum fyrirvörum um að þátttakendur endurspegli vilja hinna sem ekki tóku þátt og að engin tilraun er gerð til að telja, eða magntaka á annan hátt, fylgi við einstök sjónarmið. Á hinn bóginn var það verkefni umsjónaraðila þingsins, ráðgjafarfyrirtækjanna Alta ehf og John Thompson & Partners að greina meginlínur í þeim upplýsingum sem fram komu og ætla má að endurspegli álit bæjarbúa með fyrrgreindum fyrirvörum. Að auki er sett hér fram gróf greining fagfólks, sem að þinginu vann, á afleiðingum og möguleikum sem felast í þeim hugmyndum sem fram komu með það fyrir augum að þoka skipulagsumræðu meðal bæjarbúa áfram.
Akureyri í öndvegi þakkar þeim fjölmörgu sem aðstoðuðu við undirbúning og framkvæmd þingsins á einn eða annan hátt. Margir lögðu mikla vinnu af mörkum við veitingar, myndatökur, kynningarstarf og margt fleira sem til samans stuðlaði að vel heppnuðu þingi. Sérstakar þakkir fá Hótel KEA, Greifinn og Ásprent-Stíll.

Alta þakkar starfsmönnum Akureyrarbæjar, sérstaklega Jóni Birgi Guðmundsssyni og Bjarna Reykjalín fyrir mikla aðstoð og síðast en ekki síst stýrihópi Akureyrar í öndvegi, með Ragnar Sverrisson í fylkingarbrjósti, fyrir ánægjulegt samstarf.
Í teymi Alta á íbúaþinginu og við úrvinnslu voru:
Árni Geirsson, Áslaug Katrín Aðalsteinsdóttir, Charles Campion (starfsmaður John Thompson & Partners), Halldóra Hreggviðsdóttir, Hildigunnur Haraldsdóttir, Hildur Kristjánsdóttir, Hlín Sverrisdóttir, Ingi Hans Jónsson, Kári Eiríksson, Marta Grettisdóttir, Róbert Páll Pétursson, Sigurborg Kr. Hannesdóttir og Þráinn Valur Hreggviðsson. Að auki naut Alta aðstoðar eftirtalinna nemenda frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri: Arnar Birgir Ólafsson, Brynja Dögg Ingólfsdóttir, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Jóna Magnea Magnúsdóttir Hansen, Mari Fröysok og Stefán Jónsson.
Allar ljósmyndir eru teknar af starfsfólki Alta, nema annað sé tekið fram.
|