Niðurstöður

Aðaláhersla þingsins var á skipulag miðbæjar og leit að svörum við þeirri spurningu hvað bæjarbúar eru almennt sammála um jafnframt því að kanna hvar mest er þörf fyrir góðar hugmyndir í hugmyndasamkeppninni. Þannig má gera keppendum grein fyrir því sem nauðsynlega þarf að taka tillit til en leggja jafnframt áherslu á svigrúm sem gefst um þau atriði sem óráðin eru eða skoðanir eru skiptar um.

Þótt þinginu væri einkum ætlað að varpa ljósi á hugmyndir Akureyringa um skipulag miðbæjarins og þróun hans var ýmislegt fleira til umræðu á þinginu og er gerð grein fyrir þeirri umræðu hér. Umfjöllunarefnin voru valin með hliðsjón af því að þau tengjast forsendum heilbrigðrar miðbæjarstarfsemi og heilbrigðu bæjarlífi almennt.

Smelltu á línurnar hér fyrir neðan eða stiklurnar til vinstri til að sjá niðurstöður í einstökum málaflokkum.