Þátttaka nemenda í grunnskólum

Fyrir þingið tóku nemendur í grunnskólum þátt með því að vinna verkefni sem tengdust umfjöllunarefni þingsins. Markmiðið var að heyra sjónarmið yngri aldurshópa um það sem þeim finnst betur mega fara í umhverfi sínu og fá fram þeirra hugmyndir um lausnir. Kennarar viðkomandi bekkja höfðu svigrúm til að móta vinnuna í bekkjunum að vild, en þó með það að markmiði að niðurstöður segðu að einhverju leyti til um hvað nemendunum fyndist gott við að búa á Akureyri, hvað þyrfti að vera betra og hvað þau myndu gera ef þau mættu ráða. Reynt var að leggja áherslu á miðbæinn í umræðunni.

Fulltrúar tveggja 10. bekkja í Lundaskóla komu á þingið og kynntu niðurstöður sínar. Síðuskóli sendi niðurstöður og voru þær teknar saman fyrir þingið og kynntar og Glerárskóli sendi myndefni sem var til sýnis á þinginu. Sjá má hugmyndir og ábendingar grunnskólanemendanna með því að smella á línurnar hér fyrir neðan: