Ljósmyndir:
    Þorgeir Baldursson

    Áfram veginn

    Eins og getið var um í upphafi var Opna þingið haldið til að móta forsögn í alþjóðlegri hugmyndasamkeppni um miðbæ Akureyrar. Úrslit verða kynnt vorið 2005 og vonandi mun dómnefnd þurfa að velja milli fjölmargra góðra hugmynda. Mikil áhersla er lögð á það við undirbúning keppninnar að tryggja að hugmyndir verði raunsæjar þótt verið sé að leita að frumlegum lausnum. Jafnframt er gerð skýr grein fyrir því hver sérkenni Akureyrar eru og bæjarbúa vilja halda í.
    Dómnefnd hefur að loknu Opna þinginu góða mynd af því hvað muni geta fallið bæjarbúum í geð. Þó má búast við því að verðlaunatillaga komi bæjarbúum á óvart því til þess er leikurinn gerður að fá ný sjónarhorn. Þá er mikilvægt að skoða útkomuna með opnum huga og huga vel að því hvernig gera megi góðar hugmyndir að veruleika. Þar er hlutur bæjarstjórnar og stjórnmálamanna ekki sístur.

    Að lokum

    Opna þingið sem Akureyri í öndvegi hélt var það langfjölmennasta sem haldið hefur verið á Íslandi og þótt víðar væri leitað. Ástæðuna má rekja til áhuga og elju Akureyrar í öndvegi við markaðssetningu, góðs samstarfs við bæjaryfirvöld og áhuga bæjarbúa og annarra sem tóku þátt. Þingið og sú hugmyndasamkeppni sem nú er framundan markar tímamót, ekki bara fyrir Akureyri heldur einnig á landsvísu. Annars vegar er það vegna þess að frumkvæði og framkvæmd verkefnisins er í höndum einkaaðila sem eiga síðan um það samstarf við bæjaryfirvöld. Hins vegar er þetta í fyrsta sinn sem svo víðtækt samráð við íbúa og hagsmunaaðila skapar grunn að alþjóðlegri hugmyndasamkeppni. Alta þakkar öllum þessum aðilum einstaklega ánægjulegt samstarf og óskar þeim velfarnaðar við metnaðarfullt verkefni. Við erum þess fullviss að sú brautryðjendaleið sem hér hefur verið farin skapar óvenju traustan grunn að þeirri sókn sem nú er framundan. Sókn sem miðar að því að skipa Akureyri í öndvegi.