Metþátttaka í hugmyndasamkeppninni
3. mars 2005
Þátttaka í hugmyndasamkeppninni fór fram úr björtustu vonum og alls bárust um 140 tillögur. Aldrei fyrr hafa jafn margar tillögur borist í keppni sem Arkitektafélag Íslands hefur átt aðild að og þessi fjöldi nálgast það að vera þrefalt fyrra met. Mikið hefur mætt á trúnaðarmanni keppenda, Haraldi Helgasyni, sem annast móttöku og skráningu allra tillagnanna. Domnefnd hefur störf fljótlega og mun tilkynna um úrslit þann 14. apríl.
Sjá nánar fréttatilkynningu sem send var fjölmiðlum 3. mars.
Niðurstöður kynntar á fjölsóttum fundi
22. september 2004
Í kvöld fór fram kynning á niðurstöðum opna þingsins á laugardaginn. Fundurinn var opinn öllum áhugasömum og var haldinn í Hólum, húsi Menntaskólans á Akureyri. Alls mættu um 300 manns sem var umfram björtustu vonir.
Ítarlegt efni um þingið og niðurstöður þess er að finna hér á vefnum, sjá hér.
Niðurstöðurnar endurspegla megindrætti þess sem fram kom hjá þátttakendum á þinginu. Verður forvitnilegt að fylgjast með hvernig allar þessar upplýsingar munu endurspeglast í tillögum keppenda í alþjóðlegu hugmyndasamkeppninni. Eftir því verðum við að bíða til vorsins en niðurstöður samkeppninnar munu liggja fyrir sumardaginn fyrsta, 21. apríl á næsta ári.
Fjölmenni á opnu þingi 18. september 2004
Gríðarleg aðsókn var að opna þinginu um framtíð miðbæjarins sem Akureyri í öndvegi stóð fyrir í íþróttahöllinni í dag. Bæjarbúar fóru að hópast í salinn um leið og húsið opnaði og strax í fyrstu vinnuhópum kl. 10:15 voru þátttakendur orðnir á þriðja hundrað. Þegar mest lét voru um fimm hundruð manns í húsinu í einu og er áætlaður heildarfjöldi þátttakenda um 1450.
Mikill kraftur var í vinnunni á þinginu og mörg málefni sem voru tekin fyrir bæði í vinnuhópum og yfir skipulagskort. Meðal málefna má nefna; skóla og menningarstarfsemi, miðbæinn almennt, atvinnuþróun, umhverfi, íþróttasvæðin, samgöngur, og sögu og menningu. Eins og gefur að skilja voru sjónarmið fólks bæði mörg og margvísleg og gefa frábæran efnivið í skilgreiningu keppnisforsendna fyrir alþjóðlegu arkitektasamkeppnina sem verður auglýst í október.
Höfðinglegar veitingar voru í boði allan daginn á vegum eyfirskra matvælafyrirtækja og fjöldi fjölmiðla mætti á staðinn. Má segja að hátíðarstemning hafi ríkt frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Það voru lúnir en ánægðir aðstandendur sem slitu þinginu í viðurvist á annað hundrað þátttakenda laust uppúr klukkan sex um kvöldið.
Smelltu á "Opið þing" hér til vinstri til að fá nánari upplýsingar um þingið og niðurstöður þess.
Samið við Akureyrarbæ
6. september 2004 
Í dag var gengið frá samningi við Akureyrarbæ um fjölþætta aðkomu og styrk bæjarins við átaksverkefnið "Akureyri í öndvegi". Samningurinn var undirritaður í Ráðhúsi Akureyrar af Kristjáni Þór Júlíussyni fyrir hönd bæjarins og þeim Helga Teiti Helgasyni útibússtjóra Landsbankans, Jóhannesi Jónssyni kaupmanni í Bónus og Ragnari Sverrissyni kaupmanni í JMJ fyrir hönd "Akureyrar í öndvegi".
Samningurinn leggur grunninn að margháttaðri samvinnu Akureyrarbæjar og "Akureyrar í öndvegi" og miðar að því að verkefnið muni þegar upp verður staðið hafa skilað þeim árangri sem aðstandendur þess hafa stefnt að varðandi skipulag og eflingu miðbæjarins. Þannig mun bærinn fá aðgang að upplýsingum og hugmyndum sem safnast í samráðsferli með íbúum Akureyrar og undirbúningi fyrir alþjóðlega hugmyndasamkeppni sem samið hefur verið um að Arkitektafélag Íslands annist framkvæmd á. Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri mun leiða dómnefnd keppninnar og Bjarni Reykjalín deildarstjóri umhverfisdeildar bæjarins verður ráðgjafi dómnefndar. Að lokinni úrvinnslu hugmynda í alþjóðlegu samkeppninni mun bærinn öðlast aðgang að öllum hugmyndunum og stefnt er að frekari samvinnu til að unnt verði að hrinda vinningstillögunni eða tillögunum í framkvæmd.
Meðal þeirra þátta sem bærinn mun leggja til er húsnæði og aðstaða undir opna samráðsþingið þann 18. september, en það verður haldið í íþróttahöllinni og mun standa frá kl. 10 til 18. Eins mun bærinn leggja til húsnæði undir kynningu í kjölfar þingsins sem og kynningu á verðlaunahugmyndunum í sumarbyrjun á næsta ári. Þá munu starfsmenn bæjarins aðstoða við útvegun gagna sem varða skipulag og sögu Akureyrar.
Sú stuðningsyfirlýsing bæjarins við "Akureyri í öndvegi" sem felst í samningnum er mjög mikils virði til að auka vægi alþjóðlegu hugmyndasamkeppninnar og mun væntanlega skila sér í fleiri og betri tillögum bæði frá innlendum og erlendum arkitektum.
Undirritaður samningur við Arkitektafélag Íslands 1. september 2004
Í dag var undirritaður samningur milli Arkitektafélags Íslands og "Akureyri í öndvegi" um alþjóðlegu hugmyndasamkeppnina sem haldin verður um skipulag í miðbænum. Fyrir hönd Arkitektafélagsins skrifaði Jakob F. Líndal varaformaður undir samninginn en þeir Jóhannes Jónsson, Helgi Teitur Helgason og Ragnar Sverrisson skrifuðu undir fyrir hönd "Akureyrar í öndvegi".
Humyndasamkeppnin sem Arkitektafélagið mun annast framkvæmd á er einn af lykilþáttum verkefnisins. Gert er ráð fyrir að samkeppnin verði auglýst í lok október og að þátttakendur skili hugmyndum sínum í byrjun mars á næsta ári. Niðurstöður samkeppninnar verða síðan kynntar og verðlaunaafhending mun fara fram sumardaginn fyrsta, á næsta ári. Í kjölfarið verða verðlaunatillögurnar til sýnis á Akureyri.
Samningurinn sem undirritaður var í dag nær til skipulags og umfangs keppninnar sem mun með þátttöku Arkitektafélagsins og stuðningi Akureyrarbæjar fá mjög aukið vægi og góða kynningu á alþjóðlegum vettvangi. Verðlaunafé verður 86.000,- evrur eða sem samsvarar sjö og hálfri milljón íslenskra króna. Einnig er gert ráð fyrir þeim möguleika að kaupa afnotarétt fleiri hugmynda.
Í dómnefnd keppninnar munu sitja:
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, Formaður, fyrir hönd AÍÖ
Þorvaldur Þorsteinsson, myndlistamaður, fyrir hönd AÍÖ
Hlín Sverrisdóttir, landslagsarkitekt og skipulagsfræðingur, fyrir hönd AíÖ
Árni Ólafsson, arkitekt, fyrir hönd Arkitektafélagsins
Pétur H. Ármannsson, arkitekt, fyrir hönd Arkitektafélagsins
Undirbúningsfundur fyrir opið þing
11. ágúst 2004
Þann 11. ágúst var mikið að gera hjá aðstandendum "Akureyrar í öndvegi". Dagurinn hófst uppúr kl. 9:00 á kynningarferð um bæinn undir leiðsögn Bjarna Reykjalín og Ingólfs Ármannssonar.
Klukkan 12:30 hófst síðan vinnufundur í Stássinu á Greifanum þar sem boðið hafði verið aðstandendum verkefnisins, fulltrúum úr atvinnuþróunarhópnum, ýmsum starfsmönnum bæjarins og bæjarfulltrúum. Fundinn sóttu vel á fjórða tug þátttakenda og fór hann fram með sama sniði og opna þingið þann 18. sept. mun gera. Fyrst var viðstöddum gefið tækifæri á að tjá sig um vandamál, drauma og lausnir tengdar miðbænum og síðan voru myndaðir minni hópar sem unnu hver á sínu skipulagsborði að mismunandi málefnum. Til umfjöllunar voru miðbærinn í sinni mest afmörkuðu mynd, miðbærinn í víðara samhengi og miðbærinn út frá atvinnuþróun. Skemmst er frá því að segja að umræður voru mjög líflegar og mikið af málefnum sem leit dagsins ljós. Fundurinn mun því nýtast mjög vel til undirbúnings frekari umræðum á opna þinginu.
Þó að einmuna veðurblíða væri um allt land þennan dag töfðust reykvísku þátttakendurnir vegna þoku og náðu því ekki að vera með í kynningarferðinni um morguninn. Bjarni Reykjalín bauð þeim í staðinn uppá aðra ferð um kvöldið og eru honum færðar þakkir fyrir það.

Aðilar í atvinnuþróun funduðu með "Akureyri í Öndvegi"
30. júní 2004
Frá því hugmyndin um "Akureyri í Öndvegi" kom fyrst fram hefur borist fjöldi ábendinga um nauðsyn þess að verkefnið taki tillit til þarfa atvinnulífsins á Akureyri og miði meðal annars beinlínis að því að bæta rekstrarforsendur fyrirtækja á Akureyri og þá sérstaklega í miðbænum.
Aðstandendum verkefnisins er ekkert ljúfara en að koma til móts við þessar ábendingar enda í flestum tilfellum um að ræða aðila sem nú þegar bjóða þjónustu á miðbæjarsvæðinu eða hafa áhuga á að koma sér upp aðstöðu þar. Miðvikudaginn 23. júní var stigið fyrsta skrefið í þá átt að koma á formlegum tengslum við atvinnuuppbygginguna þegar haldinn var kynningar og samráðsfundur með þeim aðilum sem með einum eða öðrum hætti tengjast atvinnuþróun á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu. Til fundarins var boðið sérstaklega aðilum frá samtökum ferðaþjónustunnar á svæðinu, aðilum í atvinnuþróun, markaðs- og kynningarfulltrúum bæjarins auk fulltrúum Háskólans á Akureyri og Eyþings.
Á fundinum var farið yfir þá starfsemi sem er í gangi nú þegar, og verkefnið Akureyri í Öndvegi kynnt fyrir þátttakendum. Áhugi fundargesta fyrir verkefninu er mikill og ljóst að allir telja það geta orðið þeim til framdráttar í sínum störfum ef vel gengur. Ákveðið var að halda samstarfinu áfram og leggja í sameiningu áherslu á að nýjar hugmyndir að skipulagi miðbæjarins muni taka ríkt mið af því að þar skapist frjósamur jarðvegur fyrir hvers konar miðbæjarsækna starfsemi.

Stofnun félags um verkefnið "Akureyri í Öndvegi"
30. júní 2004
Á fundi þann 22. júní var formlega ákveðin stofnun félags um verkefnið Akureyri í Öndvegi. Stofnaðilar að félaginu eru:
Bónus,
Hagar,
Hagkaup,
Herradeild JMJ, Íslandsbanki,
Kaldbakur,
KB Banki,
KEA,
Landsbankinn,
Sjóvá-Almennar,
Sparisjóður Norðlendinga,
VÍS,
Vörður vátryggingafélag, Þyrping.
Í ljósi þess hvers eðlis verkefnið er þykir sjálfseignarstofnunarformið henta félaginu best og varð það því fyrir valinu. Gengið verður frá formlegri skráningu félagsins á allra næstu dögum.
Á stofnfundinum kom fram mikill og einlægur áhugi allra þátttakenda fyrir verkefninu og var sérstaklega gaman að sjá hvernig samkeppnisaðilar frá degi til dags hafa tekið höndum saman um farsælan framgang þessa verkefnis og eru hver og einn viljugir að helga því hluta af sínum umsetna tíma. Eig þeir allir þakkir skildar fyrir það.
Fundur með hagsmunaaðilum af miðbæjarsvæðinu
30. júní 2004
Að kvöldi þriðjudagsins 22. júní var efnt til samráðsfundar í Hótel KEA með aðilum sem sérstaklega eru taldir eiga hagsmuna að gæta í miðbæ Akureyrar. Til fundarins var boðið fulltrúum u.þ.b. 800 skráðra aðila með það að markmiði að heyra raddir sem allra flestra varðandi væntingar þeirra til verkefnisins "Akureyri í Öndvegi".
Á fundinum var fyrst farið yfir tilurð og skipulagningu verkefnisins. Pétur H. Ármannsson arkitekt fór yfir þróun miðbæja á Íslandi frá því hennar fyrst fór að gæta og kom inná forsendur virkra og lifandi miðbæja í samfélagi nútímans. Sigurborg Kr. Hannesdóttir frá ráðgjafarfyrirtækinu Alta kynnti síðan hvernig búið er að skipuleggja verkefnið með það að markmiði að alþjóðleg hugmyndasamkeppni um skipulag miðbæjarins gefi af sér hugmyndir sem verða í senn glæsilegar og bjóða uppá raunverulegar framfarir með þarfir bæjarfélagsins að leiðarljósi.
Að lokinni kynningu var farið yfir væntingar þátttakenda til verkefnisins og þá sérstaklega varðandi opna samráðsþingið sem haldið verður 18. september og er lykilviðburður til að greina þarfir samfélagsins. Umræða fór fram með svipuðu sniði og verður á opna þinginu og var lögð áhersla á að fá fram hugmyndir um markmið og málefni til umfjöllunar á þinginu og síðan eftirfylgni verkefnisins að lokinni hugmyndasamkeppninni. Þátttaka í umræðunum var mjög virk og var almennt gerður góður rómur að framtakinu og nauðsyn þess að það verði til farsældar fyrir bæinn. Í ljós kom líka að flestir þátttakendur voru nú þegar tilbúnir að hefjast handa og ræða einstök viðfangsefni niður í kjölinn. Það mun þó eins og áður sagði bíða betri tækifæra í september.
Kjörnir fulltrúar og embættismenn á samráðsfundi
3. júní 2004
Þann 3. júní var kjörnum fulltrúum í öllum ráðum og nefndum á Akureyri ásamt lykil embættismönnum boðið til samráðsfundar um verkefnið. Fundurinn
var haldinn á Hótel KEA. Þar var verkefnið kynnt nánar. Í framhaldi var
kallað eftir hugmyndum og sjónarmiðum bæjaryfirvalda varðandi það verkefni
sem framundan er. Á fundinum spunnust fjörlegar umræður um miðbæinn og
fékkst þar góður efniviður sem nýttur verður við mótun verkefnisins.
Fyrsti formlegi fundur áhugahóps
25. maí 2004
Þann 25. maí 2004 var haldinn fyrsti formlegi fundur áhugahóps um
uppbyggingu miðbæjarins á Akureyri, en þessir aðilar standa að baki verkefninu "Akureyri í öndvegi". Fundurinn var haldinn í ráðhúsi Akureyrar.
Á fundinum kynntu Ragnar Sverrisson helsti hvatamaður verkefnisins og
fulltrúar á vegum ráðgjafarfyrirtækisins Alta tilhögun þess. Gert er ráð
fyrir að halda Opið þing í haust um skipulag miðbæjar Akureyrar fyrir íbúa
og hagsmunaaðila á Akureyri og víðar en allir áhugasamir eru velkomnir, hvar á landinu sem þeir búa. Í kjölfarið verður haldin alþjóðleg
arkitektasamkeppni og má gera ráð fyrir að niðurstaða hennar liggi fyrir
vorið 2005. Fundarmenn lögðu mikla áherslu á að atvinnumál yrðu skoðuð
samhliða annarri uppbyggingu. Fram kom í máli bæjarstjóra Kristjáns Þórs
Júlíussonar að Akureyrarbær styðji verkefnið heils hugar.
|