Sýning á tillögum :
Sjá má næstum allar tillögurnar hér á vefnum. Smelltu á "samkeppni" hér fyrir ofan.
|
|
Unnið að nýju skipulagi miðbæjar
Þann 27. september 2006 var samþykkt nýtt aðalskipulag fyrir Akureyri sem tekur m.a. mið af niðurstöðum hugmyndasamkeppninnar sem Akureyri í öndvegi stóð fyrir og kynnt er á þessum vef.
Unnið verður áfram að útfærslu síkis frá Pollinum inn að Hafnarstræti, í samræmi við tillöguna sem hlaut fyrstu verðlaun. Jafnframt verður hugað að þrengingu Glerárgötunnar frá gatnamótum við Drottningarbraut upp til móts við íþróttavöllinn, í samráði við Vegagerðina. Samhliða verður unnið að tillögum um breytt bílastæðafyrirkomulag í miðbænum, með aukinni áherslu á götustæði og bílageymslur. Í samræmi við óskir íbúa og verðlaunatillögur verður tekið tillit til eldri byggðar á svæðinu og kappkostað að skapa skjólsæla, sólríka og aðlaðandi byggð.
Gert er ráð fyrir því að megin uppbyggingu í miðbænum verði fyrst í stað beint að kjarnasvæði miðbæjarins. Í því skyni verða skilgreindir áfangar fyrir deiliskipulag og uppbyggingu. Jafnframt verður landnotkun nánar skilgreind innan miðbæjar, þannig að verslun, atvinnurekstri og íbúðarbyggð verði beint á tiltekna reiti.
Reynt verður að efla ímynd og sérstöðu miðbæjarins og Akureyrar varðandi menningu, listir og ferðaþjónustu í samráði við hugsanlega uppbyggingar- og þróunaraðila.
Sýning á tillögum
Laugardaginn 7. maí 2005 voru úrslit í hugmyndasamkeppninni kynnt og opnuð sýning á öllum hygmyndunum sem bárust en þær voru alls 151 frá 40 löndum. Hugmyndin sem hlaut fyrstu verðlaun gerir ráð fyrir að síki sé grafið frá Pollinum inn að Hafnarstræti á móti Skátagili. Þannig endurheimtast sjón- og gögngutengsl milli miðbæjarins og Pollsins og skjólsæl, sólrík rými myndast. Sjá nánar niðurstöðu dómnefndar og sýningu á tillögunum hér á vefnum.
The results have been announced and the entries exhibited
On Saturday, May 7th, 2005, the results of the competition were announced and an exhibition of all the entries opened. A total of 151 entries were submitted from 40 countries. The entry winning the first prize suggests a harbor inlet, canal, from the harbor to Hafnarstræti, opposite to Skátagil. This way, earlier visual and prdestrian links between the town center and the ocean are reclaimed and sunny, sheltered urban spaces provided. For more information, see the Jury's report and an exhibition of the entries here on this web.

Steve Baty, Graeme Massie, Karolina Skalska, Juliusz Dudniczek, Magdalena Kalinowska, Ewa Wielińska, Nebojša Ðurđulov, Jelena Josipović, Paul Fox, Rose Bonner, David Jameson, Ragnar Sverrisson, Jóhannes Jónsson.
|